
Fermingarfræðsla
Fermingarstarfið hefst í september ár hvert
Ferming fer fram í almennri messu safnaðarins að lokinni fermingarfræðslu og er líkt og hefðbundnar messur tæplega klukkustund að lengd.
Hér á heimasíðu Þjóðkirkjunnar má finna fróðleik um ferminguna.
Á hverjum vetri er farin ferð í Vatnaskóg ásamt fermingarbörnum í Hveragerðisprestakalli.
Fermingarfræðslugjald er innheimt samkvæmt gjaldskrá Þjóðkirkjunnar og er 24.992,- kr.
Fermingardagar 2026:
Sunnudagurinn 22. mars
Skírdagur 2. apríl
Hvítasunnudagur 24. maí
Allar athafnirnar hefjast kl. 13:30
Viltu fermast í Þorlákskirkju?
Skráning í fermingar og fermingarfræðslu
Vinsamlegast sendið tölvupóst til sóknarprests á netfangið: [email protected] til þess að skrá í fermingarfræðslu. Þar komi fram nafn fermingarbarns og kennitala





