Fréttir
Hér getur þú fylgst með fréttum og tilkynningum
Helgihald á jólum
Aftansöngur á aðfangadag, 24. des. kl. 18:00 í Þorlákskirkju
Hátíðarguðsþjónustur á annan dag jóla, 26. des. kl. 13:30 í Hjallakirkju og kl. 15:00 í Strandarkirkju
Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar verður flutt.
Kór Þorláks- og Hjallakirkju syngur undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista og sóknarprestur þjónar.
Guð gefi þér og þínum gleði og frið á jólum.
Sóknarnefndir og sóknarprestur
Tilkynning frá Sjóðnum góða í Árnessýslu
Umsóknir og úthlutanir úr Sjóðnum góða 2022
Hægt verður að sækja um fjárhagsaðstoð fyrir jólin á netinu á þar til gerðu umsóknarblaði. Senda þarf tölvupóst á
Umsóknardagar eru:
Miðvikudagur 30.nóv. 13 – 15
Fimmtudagur 1. des. 13 – 15
Þriðjudagur 6. des. 16 – 18
Úthlutunardagar:
Mánudagur 19. des. 16 – 18
Þriðjudagur 20. des. kl. 13 – 15
Með umsókn þarf að senda / fylgja eftirfarandi gögn: Allar tekjur okt. eða nóv. (Vinnulaun, tekjur frá Tryggingastofnun, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur). Öll útgjöld okt. eða nóv. (leiga,afborganir lána og húsnæðis, rafmagn/hiti, útgjöld vegna barna, tryggingar ofl.). Áríðandi er að fylla umsóknir vel og rétt út og að skjöl fylgi með umsókn. Vinsamlegast virðið þessar dagsetningar og athugið að ekki er tekið við umsóknum eftir síðasta umsóknardag, hvorki rafrænt né í síma. Síminn er eingöngu opinn á auglýstum umsóknartíma.
Þorlákshafnarkirkjugarður er ljósum prýddur nú á aðventunni og verður svo um jólin, en rafmagn verður í garðinum til mánaðarmótanna janúar - febrúar 2023.
Aðstandendur koma sjálfir með leiðisljós og kveikja á þeim.
Gjald fyrir hvert ljós er 2.500,- kr.
Kennitala Þorlákshafnarkirkjugarðs er 4510170710 og reikningsnúmerið 0152-05-251073.
Skálholtsbraut, 815 Þorlákshöfn
Opnunartími samkv. samkomulagi
[email protected]
S: 483 3616
Finna með Google Maps





