Guðsþjónusta í Þorlákskirkju

Guðsþjónusta verður í Þorlákskirkju sunnudaginn 20. september kl. 14:00.

Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista.

Sr. Sigrún Margrétar Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.

Fundur verður með fermingarbörnum vetrarins og foreldrum þeirra eftir guðsþjónustuna.

Verið velkomin til kirkju.

Sjá nánar á Facebooksíðu Þorlákshafnarprestakalls