Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 14. janúar 2023 kl. 10-15 í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn.
Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.
Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.
Kennarar námskeiðsins eru Regína Rósa Harðardóttir og Ruth Guðmundsdóttir ásamt Ingunni Björnsdóttur mentori þeirra. Þær eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um árabil.
Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn.
Vinsamlegast greiðið þátttökugjald inn á eftirfarandi reikning:
Bn. 0114-26-1513
Kt. 450613-1500
Skýring: Kyrrðarbænanámskeið
Ef spurningar vakna má senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..